09 maí 2006
Hella

Sæl nú.
Meðan ég býð eftir að hún Blíða beri öðru lambi þá ætla ég að skrifa smá hugleiðingu.
Efling Hellu sem þjónustukjarna.
Fjarað hefur undan þjónustustigi á Hellu síðari ár og mikið hefur verið um það rætt hvernig bæta mætti úr. Ekkert hefur þó verið gert af hálfu sveitarfélagsins til að sporna þar við og virðist úrræðaleysið vera algert þar á bæ sem sannaðist best þegar þeim datt í hug nú fyrir skemmstu að sveitarfélagið keypti sér Krónubúð. En hvað er þá til ráða spyrð þú.
Fólksfjölgun er eina raunhæfa leiðin til að gera Hellu að fullburða þjónustukjarna fyrir íbúana á svæðinu og til þess höfum við mikla möguleika sem við verðum að nýta.
Það eru einkum þrjú atriði sem mestu skipta þegar fólk hugar að búsetu:
1. Grunnþjónusta sveitarfélagsins verður að vera góð. Það verða ávallt að vera næg dagvistaúrræði, góður grunnskóli og þessu til viðbótar er mikil nauðsyn að efla menntun á hærri stigum og öðrum sviðum. Þar horfum við t.d. fræðaseturs í tengslum við Landgræðsluna og uppbyggingar á fræðslu tengdri hestamennsku og hrossarækt, einnig stofnun framhaldsskóla.
2. Umhverfis og skipulagsmál er mjög mikilvægur hlekkur. Ávallt þarf að vera til boða nægt framboð af fjölbreyttum lóðum til íbúðabyggðar og atvinnurekstrar til að sem flestir finni eitthvað við sitt hæfi. Það þurfa að vera lóðir fyrir unga sem aldna, ríka sem fátæka, á Bjargsbyggð og Söndum. Einnig þarf að hvetja einstaklinga til að koma á fót margskonar byggðafyrirkomulagi svo sem smábýlahverfum, frístundabyggðum og fl. Hvað umhverfismál varðar er mikilvægt að nægt þjónusturými sé við þjóðveg nr.1 og að þar sé snyrtilegt og vel um gengið á allan hátt. Með öðrum orðum að andlit þorpsins sé fagurt og frítt. Einnig er mikilvægt að hafa í huga að mikil vitundavakning er varðandi umhvervisvæna sorphirðu sem einnig er ódýrari þegar upp er staðið. Fráveitu og vatnsveitumál þurfa að vera í góðu lagi og hitaveita er mikill ávinningur.
3. Atvinnan kemur með fólkinu ef fyrri tveir þættirnir eru í lagi. En mikilvægt er að sveitarfélagið stuðli einnig að atvinnuuppbyggingu með markvissum hætti. Þar er margt hægt að gera og miklir möguleikar fyrir hendi. Við höfum hér gróskumesta hrossaræktar og hestamennskuhérað landsins og því býr mikið tækifæri sem sveitarfélagiðá að hjálpa til við að nýta. Þar er uppbyggingin á Gaddstaðaflötum mikilvægust og mun ef vel tekst til skapa hér mikla atvinnu. Landgræðsla Ríkisins er staðsett hér og því fylgja möguleikar á að koma á fót fræðasetri sem mun skapa störf. Okkar stórbrotna náttúra er alltaf að skapa okkur fleiri og fleiri störf þar erum við rétt að sjá byrjunina. Frekari úrvinnsla og markaðsetning landbúnaðarafurða er vannýttur þáttur hjá okkur t.d hvað varðar heimavinnslu hjá bændum sem ég er sannfærður að á mikla framtíð fyrir sér. Framhaldsskóla verðum við að koma á fót, það mun skapa störf og halda unga fólkinu frekar og lengur á svæðinu. Svona má áfram telja tækifærin eru hér, það þarf bara að nýta þau.
Þannig getur og á sveitarfélag að vinna að íbúafjölgun með markvissum aðgerðum og jákvæðu frumkvæði þar sem það á við. Það er sú eina og einasta leið sem fær er til að halda uppi viðunandi þjónustustigi sem ásættanlegt er fyrir íbúana. Það er nefnilega þannig að þjónustan eltir markaðinn og markaðurinn er fólk. Ef við ekki tökum mark á þessum lögmálum en ætlum að fara þá leið að niðurgreiða sjálf til okkar vöruverðið þá erum við á villigötum. K-listinn sem hafnar því stefnuleysi sem einkennt hefur stjórn sveitarfélagsins síðasta kjörtímabil en býður ykkur uppá framtíðarsýn þar sem við nýtum tækifærin okkar í mannauði og gjöfulu landi en stöndum vörð um það sem við eigum dýrmætast af náttúru og menningu.
Góða nótt já eða góðan dag eftir því hvernig á það er litið.
Viðar.