29 maí 2006

 

Sömuleiðis Guðmundur.


Sæl verið þið.
Jæja þá eru kosningarnar að baki, þeim geri ég skil síðar en fyrst ætla ég að taka kveðju Guðmundar Inga sem hann sendi mér í Sunnlenska 25 maí s.l. sem hét "Viðar féll á prófinu--aftur".
Mín kveðja ber yfirskriftina:

Guðmundur féll á prófinu- ALLTAF!!!!!!!!

Ástæða þess að ég sting niður penna nú er kveðja sem Guðmundur Ingi Gunnlaugsson sendi mér í síðasta tölublaði Sunnlenska og þakkar mér fyrir samstarfið á því tímabili sem hann hefur starfað sem sveitarstjóri og hreppsnefndarfulltrúi, fyrst í Rangárvallahreppi og nú síðast í Rangárþingi ytra. Ég þakka Guðmundi sömuleiðis fyrir gott samstarf á þessu tímabili og óska honum alls hins besta við það sem hann tekur sér fyrir hendur í framtíðinni. Í greininni gerir Guðmundur að umtalsefni samanburð á stöðu Rangárþings ytra og Rangárþings eystra sem ég birti í kosningabaráttunni, útfrá tölum beint úr ársreikningum sveitarfélaganna tveggja. Guðmundur gaf þessum samanburði falleinkunn og skil ég þann dóm ekki þar sem aðeins var verið að leggja á borðið staðreyndir. Hvort sem það var nú fyrir þennan dóm Guðmundar eða annað þá hef ég fallið á einu prófi til viðbótar síðan Guðmundur skrifaði sína grein, en það eru nýliðnar kosningar og gleðs Guðmundur eflaust yfir því, já og eflaust fleiri.
EN úr því að Guðmundur er svo örlátur að gerast prófdómari yfir mér persónulega, þá ætla ég að endurgjalda honum greiðann.
Próf Guðmundar er eftirfarandi:


  1. Guðmundur hefði átt að sjá að þær tölur sem ég birti eru beint úr ársreikningum sveitarfélaganna. Það sá hann ekki og fellur á því prófi.
  2. Guðmundur hefði ekki átta að leggja til að ég gerði frekar samanburð á eignastöðu sveitarfélaganna vegna þess að þar er samanburðurinn enn óhagstæðari fyrir Rangárþing ytra. Hann fellur líka á á því prófi.
  3. Guðmundur hefur fengið mjög langan tíma til að sanna sig sem sveitarstjóri í Rangárvallahreppi og síðan Rangárþingi ytra. Ferillinn er þannig að Rangárvallahreppur var í hans stjórnartíð undir eftirliti félagsmálaráðuneytis vegna skulda og rekstrarvanda og fyrstu fjögur ár Rangárþings ytra eru eins og fram kom í þeim tölum sem ég birti úr ársreikningi sveitarfélagsins. Frammistaða Guðmundar sem sveitarstjóri er stóra prófið hans og það er ljóst að hann hefur fallið á því líka.

Það er því ljóst að við erum báðir fallnir á þeim prófum sem við höfum lagt hvor fyrir hinn. Það sem mig undraði við grein Guðmundar, sem skipaði 14. sæti D-lista, var að það var hann sem svaraði fyrir framboðið í kosningabaráttunni og það sama var uppi á teningnum á sameiginlegum framboðsfundi sem haldinn var. Hvað segir sú staðreynd?????

Ég vil að lokum þakka þeim fjölmörgu sem ég hef starfað með á mínum sveitarstjórnarferli fyrir gott samstarf og góð kynni. Íbúum þakka þakka ég góðan stuðning og sérstaklega þeim sem stutt hafa mig dyggilega á hverju sem hefur gengið. Nýkjörinni sveitarstjórn óska ég velfarnaðar í störfum sínum fyrir samfélagið okkar en tilkynni að Kaldbaksbóndinn mun fylgjast vel með.
Það gekk ekki sem skyldi hjá K-listanum í nýliðnum kosningum af ýmsum ástæðum sem margir þekkja. Það er bara eins og það er og ætla ég ekki að gera það að umtalsefni hér en segi bara að lokum; það gengur bara betur næst.
Kveðja, Viðar á Kaldbak.






<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

+++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++