29 maí 2006
Sömuleiðis Guðmundur.

Sæl verið þið.
Jæja þá eru kosningarnar að baki, þeim geri ég skil síðar en fyrst ætla ég að taka kveðju Guðmundar Inga sem hann sendi mér í Sunnlenska 25 maí s.l. sem hét "Viðar féll á prófinu--aftur".
Mín kveðja ber yfirskriftina:
Guðmundur féll á prófinu- ALLTAF!!!!!!!!
Ástæða þess að ég sting niður penna nú er kveðja sem Guðmundur Ingi Gunnlaugsson sendi mér í síðasta tölublaði Sunnlenska og þakkar mér fyrir samstarfið á því tímabili sem hann hefur starfað sem sveitarstjóri og hreppsnefndarfulltrúi, fyrst í Rangárvallahreppi og nú síðast í Rangárþingi ytra. Ég þakka Guðmundi sömuleiðis fyrir gott samstarf á þessu tímabili og óska honum alls hins besta við það sem hann tekur sér fyrir hendur í framtíðinni. Í greininni gerir Guðmundur að umtalsefni samanburð á stöðu Rangárþings ytra og Rangárþings eystra sem ég birti í kosningabaráttunni, útfrá tölum beint úr ársreikningum sveitarfélaganna tveggja. Guðmundur gaf þessum samanburði falleinkunn og skil ég þann dóm ekki þar sem aðeins var verið að leggja á borðið staðreyndir. Hvort sem það var nú fyrir þennan dóm Guðmundar eða annað þá hef ég fallið á einu prófi til viðbótar síðan Guðmundur skrifaði sína grein, en það eru nýliðnar kosningar og gleðs Guðmundur eflaust yfir því, já og eflaust fleiri.
EN úr því að Guðmundur er svo örlátur að gerast prófdómari yfir mér persónulega, þá ætla ég að endurgjalda honum greiðann.
Próf Guðmundar er eftirfarandi:
Guðmundur hefði átt að sjá að þær tölur sem ég birti eru beint úr ársreikningum sveitarfélaganna. Það sá hann ekki og fellur á því prófi.- Guðmundur hefði ekki átta að leggja til að ég gerði frekar samanburð á eignastöðu sveitarfélaganna vegna þess að þar er samanburðurinn enn óhagstæðari fyrir Rangárþing ytra. Hann fellur líka á á því prófi.
- Guðmundur hefur fengið mjög langan tíma til að sanna sig sem sveitarstjóri í Rangárvallahreppi og síðan Rangárþingi ytra. Ferillinn er þannig að Rangárvallahreppur var í hans stjórnartíð undir eftirliti félagsmálaráðuneytis vegna skulda og rekstrarvanda og fyrstu fjögur ár Rangárþings ytra eru eins og fram kom í þeim tölum sem ég birti úr ársreikningi sveitarfélagsins. Frammistaða Guðmundar sem sveitarstjóri er stóra prófið hans og það er ljóst að hann hefur fallið á því líka.
Það er því ljóst að við erum báðir fallnir á þeim prófum sem við höfum lagt hvor fyrir hinn. Það sem mig undraði við grein Guðmundar, sem skipaði 14. sæti D-lista, var að það var hann sem svaraði fyrir framboðið í kosningabaráttunni og það sama var uppi á teningnum á sameiginlegum framboðsfundi sem haldinn var. Hvað segir sú staðreynd?????
Ég vil að lokum þakka þeim fjölmörgu sem ég hef starfað með á mínum sveitarstjórnarferli fyrir gott samstarf og góð kynni. Íbúum þakka þakka ég góðan stuðning og sérstaklega þeim sem stutt hafa mig dyggilega á hverju sem hefur gengið. Nýkjörinni sveitarstjórn óska ég velfarnaðar í störfum sínum fyrir samfélagið okkar en tilkynni að Kaldbaksbóndinn mun fylgjast vel með.
Það gekk ekki sem skyldi hjá K-listanum í nýliðnum kosningum af ýmsum ástæðum sem margir þekkja. Það er bara eins og það er og ætla ég ekki að gera það að umtalsefni hér en segi bara að lokum; það gengur bara betur næst.
Kveðja, Viðar á Kaldbak.
24 maí 2006
Íhaldsúlfur í félagshyggjugæru

Komið þið sæl.
Í gær var haldinn sameiginlegur framboðsfundur í íþróttahúsinu á Hellu.
Það sem mér fannst merkilegast við þann fund var framganga íhaldsins.
Þeir komu í pontu hver af öðrum og lýstu því yfir að þeir væru tilbúnir!!
Þetta var mest áberandi hjá þremur efstu mönnum listans og fannst mér ótrúlegt að heyra menn, sem hafa verið í meirihluta í heilt kjörtímabil með hendur djúpt í vösum, tala um að þeir væru tilbúnir. Svo svöruðu þeir engum fyrirspurnum sem fram komu og fannst mér það til skammar.
Annað sem ég las úr þeirra uppfærslu á fundinum var að þeir ætla að láta Gísla Stefánsson draga vagninn og fannst mér Búkollumyndin í dag undirstrika það.
Með málefnin í molum eftir hörmulega frammistöðu á kjörtímabilinu ætla þeir að keyra í gegn um kosningarnar á vinsældum Gísla sem er í fimmta sæti, þess mæta drengs.
Ég setti fram eftirfarandi samanburð á rekstri Rangárþingi ytra og eystra á fundinum til að bregða ljósi á frammistöðu íhaldsins á kjörtímabilinu:
Ég valdi þessa aðferð vegna þess að umhverfi þessara sveitarfélaga er nánast eins. Það sem helst er ólíkt er að Rangárþing eystra hefur framkvæmt mjög mikið á kjörtímabilinu en Rangárþing ytra mjög lítið eins og sést á tölum við liðinn fjárfestingarhreyfingar.
Rangárþing ytra þarf hins vegar að fara í miklar framkvæmdir á næstunni en Rangárþing eystra ekki.
Samanburður á rekstri Rangárþings ytra og Rangárþings eystra.
Helstu niðurstöður beint úr ársreikningum sveitarfélaganna fyrir árið 2005 í milljónum króna : (Allt tal um rauntölur er moðreykur sem íhaldið var á fundinum að reyna að koma í augu kjósenda því allar eftirfarandi tölur eru innan sama árs og þurfa því ekki að uppreiknast)
-------------------Rangárþing eystra ---Rangárþing ytra
Rekstrartekjur --------777,6----------------------740,3
Rekstrargjöld ---------657,7 ----------------------639,7
Rekstrarafgangur -----85,7 ------------------------63,1
Fjárfestingar ----------161,0 ------------------------28,7
Heildarskuldir --------641,8 -----------------------635,0
Skuldir pr./ íbúa -----383þús.---------------------435þús.
Íbúafjöldi -------------1672-------------------------1459
Eins og þið sjáið er þetta að fullu samanburðarhæft þar sem um tölurnar eru frá sama ári og og af sömu liðum í ársreikningunum.
Og hvað segja þessar tölur okkur?
Jú þær segja okkur eftirfarandi:
- Að Rangárþing ytra hefur 20 milljónum minna í rekstrarafgang.
- Að þrátt fyrir miklar fjárfestingar hjá Rangárþingi eystra þá eru skuldir nánast þær sömu hjá báðum.
- Að skuldir á hvern íbúa eru verulega hærri í Rangárþingi ytra
- Að þessar tölur útskýra hvers vegna það fjölgar miklu hraðar í Rangárþingi eystra en hjá okkur þrátt fyrir að þeir eru fjær Reykjavíkursvæðinu.
Þessi samanburður finnst mér að sýni með skýrum hætti að fjárhags stjórnun Rangárþing ytra er verulega verri en í Rangárþingi eystra og er í raun falleinkun fyrir meirihluta íhaldsins hér.
Það þarf að gera miklu miklu betur við stjórn Rangárþings ytra og við verðum að breyta til.
Við þurfum að taka hendur úr vösum og:
- Stórefla grunnþjónustuna og skapa skilyrði til fólksfjölgunar.
- Gera átak í umhverfis og skipulagmálum sem skapar atvinnu.
- Vatnsveitu um allt sveitarfélagið það eru mannréttindi.
- Koma hugmyndum um hestaakademíu í framkvæmd sem skapar okkur nýja framtíðarmöguleika
Tækifærin eru mörg og við verðum að nýta þau og það þýðir ekki að vera bara tilbúinn fyrir kosningar.
Látið ekki íhalds úlfinn blekkja ykkur þó hann sletti yfir sig sauðargærunni rétt fyrir kosningar og láti eins og hann viti ekki um fortíð sína hér síðustu fjögur ár.
Við eigum betra skilið og vil ég því skora á íbúa Rangárþings ytra að gefa nú íhaldinu frí og kjósa K.
Kveðja Viðar.
16 maí 2006
Er Krónubúðin kosningatrix???

Sæl verið þið.
Á hreppsnefndarfundi sem haldinn var 28. mars sl. var samþykkt að sveitarfélagið festi kaup á húseiginni Suðurlandsvegur 1 á Hellu alls um 1400 fm á 3 hæðum.Samhliða var gerður leigusamningur við Kaupás hf. Um leigu á rúmlega 800 fm af húsnæðinu sem verði til 10 ára með uppsagnar- og endurskoðunarrétti að fimm árum liðnum að hálfu beggja aðila.Kaupin á húseigninni Suðulandsvegi 1 sem aðstöðu fyrir stjórnsýslu sveitarfélagsins ætla ég ekki að ræða hér að öðru leiti en því að ég get vel unað við þann gjörning ef ekki hefði fylgt áðurnefndur leigusamningur.
Í leigusamningnum við Kaupás hf eru ákvæði um að Kaupás skuli setja hér upp Krónuverslun þegar "miðrými" verður opnað.(miðrými er fyrirhuguð tengibygging milli Suðurlandsvegar1 og Verkalýðshúss sem byggð verður af Rangárþingi ytra og húsfélagi Verkalýðshúss. Hvenær þetta húsnæði verður tilbúið er ekki vitað)Þegar við undirskrift samnings mun húsaleiga Kaupáss hf lækka frá því sem nú er og þegar Krónubúð opnar mun húsaleiga falla niður í 2 ár og næstu þrjú ár þar á eftir verður leiguprósentan mjög lág. Eftir það mun leiguprósentan vera helmingur af því sem nú er út samningstímabilið alls 10 ár. Auk þessa kveður samningurinn á um að Kaupás hf hafi forleigu og forkaupsrétt á umræddu leiguhúsnæði og einnig að ef gera þarf breytingar á leigushúnæðinu í kjallara þá borgar Rangárþing ytra það.Hægt er að endurskoða samninginn eftir fimm ár frá undirritun hans. Þannig er innihald þessa leigusamningnings í stuttu máli.
Nú vil ég taka skýrt fram að ég er mjög hlynntur því að hér komi lágvöruverslun og hef talað fyrir því að slíkt sé lífnauðsyn fyrir svæðið.
En að sveitarfélagið greiði niður vöruverð hér til langframa með því að styrkja eitt einstakt fyrirtæki hlýtur að vera langt umfram þau mörk sem sveitarfélög geta leyft sér og er væntanlega fordæmisgefandi.
Hvað ef annar aðili skyldi banka á dyrnar og biðja um sömu fyrirgreiðslu?
Ákvæði um stórfellda eftirgjöf á leigu flokkast sem styrkur til einstaks fyrirtækis. (gæti í þessu tilfelli verið yfir tuttugu milljónir á samningstímabilinu)
Þá má spyrja hver sé að reka hér lágvöruverslun Kaupás hf. eða sveitarfélagið. Í raun munum við sjálf greiða niður vörurnar áður en við kaupum þær svo stórfelld er eftirgjöf á húsaleigu samkvæmt samningnum. .
Hvaða endaleysa er þetta?
Og auk þess hvernig ætlar sveitarfélagið að fylgjast með því að samningsaðinn standi við sitt, á að setja á fót verðlagseftirlit Rangárþings ytra? Getur þetta gengið upp? Svarið er auðvitað NEI—og það er væntanlega skýringin á því að Krónubúð opnar ekki strax við undirritun samnings eins og eðlilegt væri ef samningamenn Rangárþings ytra væru að standa sig.
Lágvörverslun sem er í raun niðurgreidd af sveitarfélaginu,niðurgreitt af OKKUR, verður ekki opnuð á Hellu, eða sjáið þið það fyrir ykkur, og liggur því ekki í augum uppi að Krónubúðin er ekkert annað en kosningatrix.
Og þó að hér komi Krónubúð einhvertíma á næsta kjörtímabili þá verður það með þeim hætti að við munum aðeins vera að flytja fé á milli vasa hjá okkur sjálfum, slík er meðgjöfin samkvæmt áðurnefndum samningi.
Ágætu íbúar Rangárþings ytra er ekki alveg ljóst að þetta er rándýrt kosningaloforð meirihlutans, sem hefur verið með öll flögg niðri heilt kjörtímabil en eru nú korter fyrir kosningar að setja upp þetta krónubúðar flagg á ykkar kostnað til að fleyta sér yfir kosningarnar.
K-listinn varar við svona leikfléttum og bendir á leið til að efla þjónustu á Hellu en þar duga engin töfrabrögð né trix.
(sjá næstu grein hér fyrir neðan)
Sæl að sinni Viðar.
09 maí 2006
Hella

Sæl nú.
Meðan ég býð eftir að hún Blíða beri öðru lambi þá ætla ég að skrifa smá hugleiðingu.
Efling Hellu sem þjónustukjarna.
Fjarað hefur undan þjónustustigi á Hellu síðari ár og mikið hefur verið um það rætt hvernig bæta mætti úr. Ekkert hefur þó verið gert af hálfu sveitarfélagsins til að sporna þar við og virðist úrræðaleysið vera algert þar á bæ sem sannaðist best þegar þeim datt í hug nú fyrir skemmstu að sveitarfélagið keypti sér Krónubúð. En hvað er þá til ráða spyrð þú.
Fólksfjölgun er eina raunhæfa leiðin til að gera Hellu að fullburða þjónustukjarna fyrir íbúana á svæðinu og til þess höfum við mikla möguleika sem við verðum að nýta.
Það eru einkum þrjú atriði sem mestu skipta þegar fólk hugar að búsetu:
1. Grunnþjónusta sveitarfélagsins verður að vera góð. Það verða ávallt að vera næg dagvistaúrræði, góður grunnskóli og þessu til viðbótar er mikil nauðsyn að efla menntun á hærri stigum og öðrum sviðum. Þar horfum við t.d. fræðaseturs í tengslum við Landgræðsluna og uppbyggingar á fræðslu tengdri hestamennsku og hrossarækt, einnig stofnun framhaldsskóla.
2. Umhverfis og skipulagsmál er mjög mikilvægur hlekkur. Ávallt þarf að vera til boða nægt framboð af fjölbreyttum lóðum til íbúðabyggðar og atvinnurekstrar til að sem flestir finni eitthvað við sitt hæfi. Það þurfa að vera lóðir fyrir unga sem aldna, ríka sem fátæka, á Bjargsbyggð og Söndum. Einnig þarf að hvetja einstaklinga til að koma á fót margskonar byggðafyrirkomulagi svo sem smábýlahverfum, frístundabyggðum og fl. Hvað umhverfismál varðar er mikilvægt að nægt þjónusturými sé við þjóðveg nr.1 og að þar sé snyrtilegt og vel um gengið á allan hátt. Með öðrum orðum að andlit þorpsins sé fagurt og frítt. Einnig er mikilvægt að hafa í huga að mikil vitundavakning er varðandi umhvervisvæna sorphirðu sem einnig er ódýrari þegar upp er staðið. Fráveitu og vatnsveitumál þurfa að vera í góðu lagi og hitaveita er mikill ávinningur.
3. Atvinnan kemur með fólkinu ef fyrri tveir þættirnir eru í lagi. En mikilvægt er að sveitarfélagið stuðli einnig að atvinnuuppbyggingu með markvissum hætti. Þar er margt hægt að gera og miklir möguleikar fyrir hendi. Við höfum hér gróskumesta hrossaræktar og hestamennskuhérað landsins og því býr mikið tækifæri sem sveitarfélagiðá að hjálpa til við að nýta. Þar er uppbyggingin á Gaddstaðaflötum mikilvægust og mun ef vel tekst til skapa hér mikla atvinnu. Landgræðsla Ríkisins er staðsett hér og því fylgja möguleikar á að koma á fót fræðasetri sem mun skapa störf. Okkar stórbrotna náttúra er alltaf að skapa okkur fleiri og fleiri störf þar erum við rétt að sjá byrjunina. Frekari úrvinnsla og markaðsetning landbúnaðarafurða er vannýttur þáttur hjá okkur t.d hvað varðar heimavinnslu hjá bændum sem ég er sannfærður að á mikla framtíð fyrir sér. Framhaldsskóla verðum við að koma á fót, það mun skapa störf og halda unga fólkinu frekar og lengur á svæðinu. Svona má áfram telja tækifærin eru hér, það þarf bara að nýta þau.
Þannig getur og á sveitarfélag að vinna að íbúafjölgun með markvissum aðgerðum og jákvæðu frumkvæði þar sem það á við. Það er sú eina og einasta leið sem fær er til að halda uppi viðunandi þjónustustigi sem ásættanlegt er fyrir íbúana. Það er nefnilega þannig að þjónustan eltir markaðinn og markaðurinn er fólk. Ef við ekki tökum mark á þessum lögmálum en ætlum að fara þá leið að niðurgreiða sjálf til okkar vöruverðið þá erum við á villigötum. K-listinn sem hafnar því stefnuleysi sem einkennt hefur stjórn sveitarfélagsins síðasta kjörtímabil en býður ykkur uppá framtíðarsýn þar sem við nýtum tækifærin okkar í mannauði og gjöfulu landi en stöndum vörð um það sem við eigum dýrmætast af náttúru og menningu.
Góða nótt já eða góðan dag eftir því hvernig á það er litið.
Viðar.
03 maí 2006
Ársreikningur Rangárþings ytra 2005

Sæl verið þið.
Var að koma af hreppnefndarfundi þar sem meðal annars var staðfestur ársreikningur sveitarfélagsins fyrir árið 2005.
Á líðandi kjörtímabili hefur hlutfall framkvæmda verið mjög lítið, sem ætti að þýða að ef fjárhagsstjórn sveitarfélagsins hefði verið í góðu lagi á þessu tímabili þá ætti að hafa gengið verulega á skuldir sveitarsjóðs. Sú er þó ekki raunin því þrátt fyrir þetta þá hafa skuldir á tímabilinu hækkað.
Vegna lítilla framkvæmda á kjörtímabilinu verður Rangárþing ytra að fara í ýmsar mjög brýnar og mjög fjárfrekar framkvæmdir á því kjörtímabili sem í hönd fer.
Af þeim má nefna þær sem stærstar eru svo sem, skóla og leikskólabyggingar á Laugalandi og á Hellu fyrir 200-300milljónir króna, stjórnsýsluhús fyrir um 150milljónir, fráveituframkvæmdir fyrir +100milljónir og fl.. Á þessari upptalningu sést að að það þarf að gera miklu betur í rekstri Rangárþings ytra en verið hefur á þessu kjörtímabili ef ekki á að fara illa varðandi skuldastöðu og framkvæmdagetu sveitarfélagsins.
Samkvæmt rekstrarniðurstöðu þess ársreiknings sem nú var til afgreiðslu er rekstrarniðurstaða sveitarsjóðs jákvæð um 12,4milljónir króna þegar tekið er tillit til sölu eigna. Svo lítill rekstrarafgangur dugir skammt til að standa straum af þeim bráðnauðsynlegu framkvæmdum sem að framundan eru.
Það er því þörf á að ná saman kröftum allra sem sitja í komandi sveitarstjórn til að koma skútunni á réttan kjöl. Til þess að svo megi verða þurfa kjósendur taka málin í sínar hendur þann 27. maí n.k og komu nýjum meirihluta til valda með K-listann í stafni.
Slóðin á fundargerð hreppsnefndar fundarins er> http://www.rangarthingytra.is/?incid=3&bt=8&comm=1&log=294
þar er ýmislegt forvitnilegt að sjá en bendi sérstaklega á lið nr.5 en um hann er svo bókað: "5. Heklusetrið ehf. Leirubakkka:
Lögð fram tillaga um styrk til Heklusetursins að Leirubakka til uppsetningar á Heklusýningu og fræðasetri og greinagerð með henni.
Lagt er til að Heklusetrinu verði veittur styrkur að upphæð kr. 4.500.000 samtals sem greiðist á þremur árum. Á árinu 2006 greiðast kr. 2.500.000 og kr. 1.000.000 hvort árið 2007 og 2008.
Samþykkt með 5 atkvæðum, 3 á móti (HH. VHS. ÞS), 1 situr hjá (GÞ).
Bókun:
Uppbygging Hekluseturs er mjög gott framtak og góðra gjalda vert og eiga rekstraraðilar hrós skilið fyrir verkefnið. Ég hefði viljað sjá verkefnið fara sömu umsóknarleið og krafist er af öðrum fyrirtækjum sem sækja um styrki úr sjóðum sveitarfélagsins. Þá með því að skila inn tekju- og rekstraráætlun, sem hefur tíðkast. Fram kom að það var ekki gert í þessu tilfelli. Ég kýs því að sitja hjá við afgreiðslu málsins.
Guðfinna Þorvaldsdóttir, B-lista.
Bókun:
Vegna afgreiðslu 5. liðar á dagskrá varðar tillögu frá meirihluta sveitarstjórnar um styrkveitingu til Heklusetursins á Leirubakka.
Undirritaðir hafa eftirfarandi við framlagða tillögu að athuga:
· Tillagan fylgdi ekki fundargögnum.
· Ekki fylgdi með umsókn frá styrkþega.
· Ekki fylgdi með kostnaðar- og rekstraráætlanir frá styrkþega.
· Ekki er upplýst hvaða eignir Heklusetrið ehf. á.
· Upphæð styrks kr. 4.500.000 er úr takti við það sem tíðkast hefur við úthlutun styrkja úr
Atvinnueflingarsjóði og því varasamt frá jafnræðissjónarmiði.
Þröstur Sigurðsson, Heimir Hafsteinsson, Viðar H. Steinarsson."
Upphæð þessa styrks er úr öllum takti við það sem áður hefur tíðkast með styrki til einstaklinga og einkaaðila.
Það mætti halda að Rangárþing ytra sé ríkt sveitarfélag miðað við þennan rausnarlega styrk, en því miður er ekki svo og það verður erfitt fyrir komandi sveitarstjórn að fylgja þessu fordæmi.
Sæl að sinni,Viðar.